5. bekkur
Bústaðir fyrir 5. bekk síðasta þriðjudag og fimmtudag í mánuðinum kl. 14:30-17:00.
Félagsmiðstöðin Bústaðir býður uppá opið starf fyrir 5. bekki Fossvogs- og Breiðagerðisskóla síðasta þriðjudag og fimmtudag í mánuðinum eftir skóla, frá kl. 14:30 - 17:00.
Um er að ræða opið hús þar sem krakkarnir geta komið og gert það sem þau langar með aðstoð frístundaráðgjafa. Einhverja daga verður skipulögð dagskrá. Krökkunum er frjálst að koma og fara eins og þau vilja á þessum tíma.
Félagsmiðstöðin er staðsett í kjallara Bústaðakirkju. Í Bústöðum hitta krakkarnir bekkjarfélaga sína og fá tækifæri til að kynnast nýjum krökkum, auk þess sem þau kynnast Bústöðum og starfsemi okkar. Félagsstarfið er öllum að kostnaðarlausu.
Hægt verður að prófa billjard, borðtennis, leikjatölvur, horfa á sjónvarp, vídeó, dvd, spila á spil, föndra, skella sér á dansgólfið o.fl.
|
Þriðjudagar |
Fimmtudagar |
|
23. febrúar
Opið hús og nokkrir eldhressir leikir til að kynnast betur |
25. febrúar
Opið hús og bandý í salnum
|
|
23. mars
Opið hús |
25. mars
Opið hús og spiladagur |
|
27. apríl
Opið hús hús og keppni í allskonar íþróttum og leikjum |
29. apríl
Opið hús og eldhressir útileikir |