Bústaðir
Félagsmiðstöðin Bústaðir
Tunguvegi 25
108 Reykjavík
Sími: 4115420
GSM: 6955119
Bústaðir er félagsmiðstöð á vegum ÍTR, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn eru börn og unglingar í 6. - 10. bekk.
Áhersla er lögð á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga í 8. - 10. bekk. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja gesti félagsmiðstöðvarinnar í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
Boðið er upp á opið starf og ýmiskonar klúbbar eru starfandi eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þá eru haldnar ýmsar uppákomur og verkefni í samstafi við börn, foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila í hverfinu.
Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu um ýmis málefni tengdum lífsleikni og má þar nefna fræslu gegn fordómum, forvarnir gegn vímuefnum, stuðningur við jákvæða sjálfsmynd og margt fleira.
Einu sinni í viku er boðið uppá opið hús fyrir börn í 6. og 7. bekk að loknum skóladegi. Þá er opið hús fyrir 5. bekk einu sinni í mánuði.
Félagsmiðstöðin er þátttakandi í samstarfi í hverfinu og hefur m.a haldið utan um og komið að skipulagingu hverfishátíðar á sumardaginn fyrsta og einnig vegna hátíðahalda á öskudaginn. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra/forráðamenn og alla þá aðila sem koma að uppeldismálum í hverfinu. Lögð er mikil áhersla á að félagsmiðstöðin sé sýnileg og opin þeim sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemina.
Hverfisskólar tengdir Bústöðum eru Breiðagerðisskóli, Fossvogsskóli og Réttarholtsskóli.