4.9.2010
Bústaðir opna útibú í Réttó
Föstudaginn 27. ágúst opnaði Félagsmiðstöðin Bústaðir útibú í stofu 6 í Réttarholtsskóla í tilraunaskyni. Útibúið er opið alla virka daga frá kl. 11:15-13:15, stundum opið fyrr og stundum lokar seinna.
Skólinn og félagsmiðstöðin eiga í góðu samstarfi varðandi félagslíf og velferð nemenda og opnun útibúsins er einn liður í því og viðbót við það fjölbreytta félags- og tómstundastarf sem nemendum skólans býðst í félagsmiðstöðinni.